A short introduction to The Freezer Hostel, it´s goals and what it has to offer
Trúðleikur - stríðir
Trúðleikur er sumarleiksýning Frystiklefans í Rifi árið 2012.
Um sýninguna: Þeir Skúli og Spæli eru tveir trúðar sem hafa starfað saman langalengi. Skúli er ævinlega kátur og bjartsýnn, finnst yndislegt að sprella og getur ekki ímyndað sér neinn annan starfa, enda streyma hugmyndirnar og skemmtileg dellan upp úr honum eins og gosbrunni. Spæli er hins vegar krumpuð og tortryggin típa. Fljótlega kemur babb í bátinn. Spæli kemst að því að þeir félagar hafi greinilega enn einu sinni lent á vitlausum áhorfendum sem hlæi á kolröngum stöðum.
Leikarar: Benedikt Karl Gröndal og Kári Viðarsson Leikstjóri Halldór Gylfason Höfundur: Hallgrímur H. Helgason Búningar: Hulda Skúladóttir Sviðsmynd: Hópurinn